Fotbolti.net
13.08.26 - 11:01
Elvar Geir Magnússon

Sveppasýking á heimavelli Celta Vigo og leik frestað

Celta Vigo.

Celta Vigo.

Canon

Mynd: EPA

Búið er að fresta leik Celta Vigo gegn Osasuna í fyrstu umferð spænsku deildarinnar, La Liga, vegna sveppasýkingar sem hefur herjað á grasvöllinn á Estadio de Balaídos.

Leikurinn átti að vera á sunnudag en hefur verið færður til 27. ágúst.
Fulltrúar La Liga skoðuðu völlinn eftir að sveppavöxtur kom í ljós á vellinum og mátu hann óleikhæfan. Gripið verði til aðgerða til að uppræta sýkinguna í grasinu.

Leikvangurinn hefur verið í endurbótum í meira en áratug og er gert ráð fyrir að hann verði einn af ellefu spænskum leikvöngum sem hýsa heimsmeistaramótið árið 2030.

Þegar endurbótum lýkur er áætlað að stækka leikvanginn frá 40.000 til 44.000 áhorfendur.

Þremur öðrum leikjum í La Liga, sem átti að spila fyrstu helgi tímabilsins (Valencia gegn Real Betis, Real Madrid gegn Real Sociedad og Barcelona gegn Athletic Club) hefur einnig verið frestað til síðari hluta mánaðarins vegna þess að leikmenn félaganna tóku þátt í úrslitaleik heimsmeistaramótsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.