Bjössi Hreiðars: Reynum að enda þetta mót eins og menn
Auglýsing

Bjössi Hreiðars og hans menn fögnuðu góðum sigri í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Bjössi Hreiðars og hans menn fögnuðu góðum sigri í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Hauka, var eðlilega ánægður eftir 2-0 sigur sinna manna gegn ÍA á Akranesi í 1. deildinni í dag.
,,Tilfinningin er bara mjög góð. Mér fannst við spila þennan leik mjög vel, við ákváðum að reyna að enda þetta mót eins og menn og koma okkur hærra í töflunni. Við áttum tvo leiki eftir, þetta var annar þeirra og við komum hérna á sterkan útivöll gegn liði sem er að reyna að vinna deildina. Ég er ánægður með strákana," sagði Sigurbjörn við Fótbolta.net.
,,Auðvitað væri ég til í að spila þennan leik í dag upp á meira en heiðurinn. Ég hefði viljað meira, en það hafa verið ýmsar ástæður fyrir því að við höfum ekki gert betri hluti. Oft á tíðum höfum við verið sjálfum okkur verstir, en við erum með fjandi gott lið þegar menn eru rétt stilltir."