Fotbolti.net
13.09.15 - 19:47
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skrifar frá: Kaplakrika

Hafsteinn Briem: Ég hefði viljað fá spjald, mark og víti

Auglýsing
Hafsteinn Briem.

Hafsteinn Briem.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafsteinn Briem, varnarmaður ÍBV var að vonum svekktur eftir 3-1 tap liðsins gegn FH í Kaplakrika í kvöld.

Miðvörðurinn segir að leikurinn hafi spilast eins og Eyjamenn vildu fyrri part leiks.
„Já, algjörlega, gameplanið var að ganga upp fyrri part leiks. Við skoruðum gott mark.\"

Það var ansi umdeild atvik þegar Kassim Doumbia ver skalla Hafsteins inni í sínu eigin marki með hendinni. Auk þess sem boltinn var kominn inn átti Kassim að fá rautt spjald. Þóroddur Hjaltalín, dómari leiksins dæmdi hornspyrnu.

„Ég hefði viljað fá spjald, mark og víti, eða eitthvað.\"

„Mér fannst boltinn fara af hausnum á mér og þegar ég lít til baka þá finnst mér Kassim setja höndina út.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.