Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 13. september 2020 16:50
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Þróttur skoraði fjögur gegn KF
Hermann Hreiðarsson hefur verið að gera frábæra hluti á Vogum.
Hermann Hreiðarsson hefur verið að gera frábæra hluti á Vogum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur Vogum 4 - 0 KF
1-0 Alexander Helgason ('27, víti)
2-0 Eysteinn Þorri Björgvinsson ('31)
3-0 Hubert Rafal Kotus ('61)
4-0 Andri Jónasson ('63)

Þróttur Vogum vann sinn þriðja leik í röð í 2. deildinni þegar KF kíkti í heimsókn í dag.

Alexander Helgason kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu á 27. mínútu og tvöfaldaði Eysteinn Þorri Björgvinsson forystuna skömmu síðar, samkvæmt úrslitaþjónustu úrslit.net.

Í síðari hálfleik bættu Hubert Rafal Kotus og Andri Jónasson tveimur mörkum við til að gera endanlega út um leikinn.

4-0 sigur Þróttar staðreynd og er liðið í fjórða sæti með 31 stig eftir 16 umferðir. Þróttarar eru þó sex stigum eftir Selfossi í toppbaráttunni á meðan KF situr eftir um miðja deild, með 22 stig.

Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner