Fotbolti.net
18.11.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Fann óvart upp á vítaspyrnutækni

Fann óvart upp á vítaspyrnutækni
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Jorginho, sem fæddist í Brasilíu en flutti til Ítalíu 15 ára gamall, er maðurinn sem fann upp á vítaspyrnutækninni vinsælu þar sem spyrnumaðurinn hoppar áður en hann sparkar í boltann, til þess að trufla viðbrögð markmannsins.
Jorginho fór í The Obi One hlaðvarpið og ræddi um hvernig hann fann upp á vítaspyrnutækninni vinsælu.

Þar segist Jorginho hafa fundið upp á henni alveg óvart eftir æfingu hjá Napoli. Hann ætlaði að stoppa í atrennunni eins og leikmenn gerðu áður en vítaspyrnureglunum var breytt, en mistókst ætlunarverk sitt. Í staðinn fyrir að stoppa þá hoppaði hann örlítið og það truflaði markvörðinn sem skutlaði sér alltof snemma.

„Þetta byrjaði bara sem djók eftir æfingu hjá Napoli," sagði Jorginho meðal annars við John Obi Mikel í skemmtilegri klippu sem má sjá hér neðar.

Jorginho er 34 ára gamall og spilar fyrir Flamengo í Brasilíu, en hann var hjá Chelsea í fimm ár og Arsenal í tvö ár eftir að hafa spilað fyrir Verona og Napoli á Ítalíu.

Jorginho spilaði þá 57 A-landsleiki fyrir Ítalíu. Þar varð hann Evrópumeistari í Covid og vann svo Þjóðadeildina 2023.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.