Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 13. september 2021 15:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Elín Metta meidd og breyting á hópnum - Lítur vel út með Hlín
Icelandair
Elín Metta
Elín Metta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elín Metta Jensen er meidd og getur því ekki spilað með íslenska kvennalandsliðinu gegn Hollandi eftir rúma viku.

Breyting hefur orðið á landshópnum og hefur Svava Rós Guðmundsdóttir verið kölluð inn í hópinn í stað Elínar.

Leikur Íslands og Hollands fer fram á Laugardalsvelli á þriðjudaginn í næstu viku. Leikurinn hefst klukkan 18:45.

Í gær var greint frá því að Hlín Eiríksdóttir, leikmaður Piteå í Svíþjóð, hefði farið meidd af velli í leik í sænsku deildinni í gær. Hlín er í landsliðshópnum sem tilkynntur var í síðustu viku. Fótbolti.net heyrði í Þorsteini Halldórssyni í dag og spurði hann út í stöðuna á Hlín.

„Ég talaði við hana í gær, hún er að fara í skoðun klukkan fjögur og þetta lítur vel út allavega eins og staðan er í dag," sagði Þorsteinn.


Athugasemdir
banner
banner