Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 13. október 2020 23:00
Aksentije Milisic
Thiago hafnaði Barcelona í sumar
Mynd: Getty Images
Barcelona reyndi að fá Thiago aftur til liðsins í sumar áður en Liverpool keypti hann. Þessu greinir Guardian frá í dag.

Thiago var að leitast eftir nýrri áskorun eftir sjö ár hjá Bayern Munchen. Hann gekk á endanum til liðs við Liverpool fyrir 25 milljónir punda.

Barcelona reyndi að fá leikmanninn til að koma aftur á Nou Camp en Thiago vildi sjálfur ólmur ganga til liðs við Liverpool.

Thiago spilaði 100 leiki fyrir Barcelona á árunum 2009-2013, þar sem hann vann deildina í tvígang, Meistaradeildina einu sinni sem og spænska bikarinn.

Hann vildi byrja nýjan kafla á sínum ferli og því hafnaði hann því að fara aftur til Barcelona og gekk til liðs við ensku meistarana.

Athugasemdir
banner
banner