Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 13. október 2021 19:15
Brynjar Ingi Erluson
Foden fær sex ára samning hjá Man City
Phil Foden
Phil Foden
Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden mun á næstu dögum skrifa undir nýjan sex ára samning við Manchester City en það er Telegraph sem segir frá.

Foden er 21 árs gamall sóknartengiliður og þykir einn efnilegasti leikmaður Evrópu um þessar mundir.

Hann fór í gegnum akademíu félagsins og spilaði sinn fyrsta leik þegar hann var aðeins 17 ára gamall.

Foden er í dag fastamaður í enska landsliðshópnum og er þá byrjunarliðsmaður hjá City en hann er nálægt því að ganga frá nýjum samningi við City.

Samkvæmt Telegraph mun Foden framlengja til næstu sex ára og þéna um 150 þúsund pund á viku.

Ederson, Ruben Dias, John Stones og Kevin de Bruyne framlengdu allir samninga sína við City á þessu ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner