29.09.26 - 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu lúxus-mark Orra í Lúxemborg - „Það eru svo mikil gæði í þessu“

Orri Steinn skoraði tíunda landsliðsmark sitt

Mynd: KSÍ

Orri Steinn Óskarsson var að koma Ísland í 2-0 gegn Lúxemborg ytra, en markið var úr efstu hillu.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 2 Ísland
Andri Lucas Guðjohnsen fékk sendingu á lofti, gaf svakalega hælsendingu yfir vörnina og á Orra Stein sem náði að drepa boltann fullkomlega fram fyrir sig í hlaupið áður en hann keyrði upp að markinu og afgreiddi boltann í netið.
Þetta var tíunda landsliðsmark Orra. Tveggja marka forysta og Ísland nær því að ná fyrsta sigrinum í langan tíma.
„Ég var nýbúinn að sleppa orðinu að við megum ekki detta niður á sama plan, en það eru svo mikil gæði í þessu marki. Fyrsta snertingin er mikilvægustu og hún er fullkomin í þessu tilviki og þess vegna nær hann að halda hraðanum. Ískaldur fyrir framan markið, gæða framherji með gæðamark,“ sagði Kjartan Henry á SÝN.