29.09.26 - 18:07
Brynjar Ingi Erluson
Framkvæmdastjórinn óþægilegur: Ég hef ekkert að segja

Ferran Soriano (t.v.) ásamt Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformanni Man City, Pep Guardiola og Txiki Begiristain

Mynd: EPA

Sky var mætt á ráðstefnu stærstu félaga Evrópu í Kaupmannahöfn til að fá viðbrögð frá Ferran Soriano, framkvæmdastjóra Manchester City, eftir að félagið var fundið sekt um brot á öllum 115 ákæruliðunum sem snúa að fjárhagsreglum deildarinnar í dag.

TENGT EFNI
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Á föstudag greindi Athletic frá því að Man City hefði verið fundið sekt um brot á 114 af 115 ákæruliðum sem snúa að misalvarlegum brotum á fjárhagsreglum deildarinnar.
Þar kom meðal annars fram að félagið hefði notað sýndarsamninga til að blása upp tekjur, skilað röngum upplýsingum og leynt raunverulegri fjárhagsstöðu sinni. Þá var félagið einnig fundið sekt um að hafa ekki unnið nægilega með rannsókninni og brotið reglur ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA um fjárhag.
Soriano var mættur til Kaupmannahafnar í gær þar sem hann á að hafa sagt fulltrúum annarra stórfélaga að málið hefði þegar verið í ferli í átta ár og gæti tekið mörg ár til viðbótar áður en endanleg niðurstaða fæst. Þá á hann að hafa ítrekað að Man City ætli sér að berjast af öllu afli í málinu.
Þegar úrskurður ensku úrvalsdeildarinnar var birtur í dag gekk Rob Harris, sjónvarpsmaður hjá Sky, að Soriano á ráðstefnunni og spurði hvort hann hygðist biðja fótboltaáhugafólk afsökunar vegna málsins.
„Ég hef ekkert að segja um þetta. Takk fyrir,“ sagði Soriano.
Hann neitaði að svara frekari spurningum og virtist greinilega óþægilegur með stöðuna. Fleiri reyndu að ná tali af honum, en Soriano þakkaði einfaldlega fyrir sig og vildi ekki tjá sig meira.

"Do you apologise to football fans? The Premier League says 'sham' contracts, is this a 'sham' club?"@RobHarris questions Man City chief executive Ferran Soriano after the club was found guilty of all charges related to Premier League's financial ruleshttps://t.co/3A2kYsOcCZ pic.twitter.com/LstPJGEPd7
— Sky News (@SkyNews) September 29, 2026

Mynd: EPA