29.09.26 - 19:11
Brynjar Ingi Erluson
Tólfta landsliðsmark Andra - „Ekkert eðlilega nettur“

Andri Lucas skoraði mark Íslands

Mynd: KSÍ

Andri Lucas skoraði mark Íslands

Mynd: KSÍ

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði sitt tólfta landsliðsmark fyrir Ísland er hann kom landsliðinu í 1-0 forystu gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni nú rétt í þessu.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 2 Ísland
Orri Steinn Óskarsson slapp inn fyrir hægra megin, keyrði upp vænginn og renndi boltanum síðan inn á Andra sem afgreiddi hann utanfótar framhjá markverði heimamanna.
„Finnur kollega sinn Andra Lucas, sem er heitur og svona afgreiða heitir leikmenn færin sín,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason í lýsingu Sýnar.
Guðmundur Benediktsson, sem lýsir leiknum með Kjartani, bætti svo við: „Ekkert eðlilega nettur!“
Andri skoraði þar með annan landsleikinn í röð og er nú fjórtán mörkum frá því að ná föður sínum, Eiði Smára Guðjohnsen. Hann er jafnframt aðeins tveimur mörkum frá því að jafna afa sinn, Arnór, sem skoraði 14 mörk á landsliðsferlinum.