29.09.26 - 19:54
Brynjar Ingi Erluson
Aron og Kári ánægðir með fyrri hálfleikinn - „Það er áþreifanlegt“

Andri og Orri komu Íslandi í 2-0

Mynd: KSÍ

Aron Elís er ánægður með ákefðina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árna er sáttur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri og Orri komu Íslandi í 2-0

Mynd: KSÍ

Aron Elís Þrándarson og Kári Árnason fóru yfir fyrri hálfleikinn hjá íslenska landsliðinu gegn Lúxemborg í settinu á SÝN, en báðir eru mjög ánægðir með það sem þeir hafa séð til þessa. Staðan er 2-0 fyrir Íslandi.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 3 Ísland
Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi yfir snemma leiks eftir frábæran undirbúning Orra Steins Óskarssonar og endurlaunaði Andri honum það með frábærri hælsendingu undir lok hálfleiksins, Orri átti frábæra fyrstu snertingu og keyrði upp að markinu og skoraði.
„Þetta lítur töluvert betur út. Þegar boltinn vinnst þá erum við að hugsa um eitt og það er að reyna skora. Það komst korters tuttugu mínútna kafli þar sem við unnum boltann trekk í trekk og við hugsum: 'Við verðum að fara nýta eitthvað af þessu', en það gekk vel, komum okkur í frábæra stöðu en enduðu kannski í marknetinu. Seinna meir erum við búnir að leggja aðeins aftast en að bíða eftir mómentinu til að vinna boltann og setja þá í gildru. Það verða samt einhverjar breytingar gerðar í Lúxemborg því þetta er ekki boðlegt af þeirra hálfu,“ sagði Kári á SÝN.
Aron Elís er ánægður með svarið hjá íslensku leikmönnunum.
„Það er áþreifanlegt að ákefðin er mun meiri en gegn Eistlandi. Vissulega hentar það okkur betur að þeir séu að reyna spila út og klúðra boltanum fyrir utan teig en það verður að hrósa okkar mönnum að við erum 'on it' og éta þá trekk í trekk,“ sagði Aron.
Hann hrósaði þá mörkunum og samstarfinu hjá þeim Andra og Orra.
„Alvöru svægi yfir þessari afgreiðslu hjá Andra og geislar af sjálfstrausti. Orri er með 'sniffið' fyrir því að detta einn í gegn reglulega í hverjum leik og fagmannlega klárað,“ sagði Aron, og bætti Kári við að sendingin hjá og fyrsta snertingin hjá Orra hefði verið frábær.
„Þetta er æðisleg sending en líka að lesa þetta en fyrsta snertingin hjá Orra er æðisleg og slúttið gott.“
Er maður ekkert að ofhugsa hlutina þegar maður hefur svona mikinn tíma eins og Orri fyrir framan markið?
„Ég sjálfur lendi ekki oft í því að komast einn í gegn, en ef þú hefur of mikinn tíma þá áttu til að ofhugsa aðeins en bara vel gert og mikilvægt hjá Orra að klára þetta,“ sagði Aron sem talaði síðan um ákefðina.
„Maður var að vonast eftir þennan leik á móti Eistlandi að strákarnir myndu svara þessari frammistöðu með alvöru ákefð í þessari pressu. Þú sérð það í einvígunum, við erum grimmir og vinnum boltann á góðum stöðum og fljótir að koma okkur í færi þegar við vinnum þá,“ sagði hann enn fremur.