Fotbolti.net
13.10.26 - 20:43
Brynjar Ingi Erluson

Ætla að bjóða umdeilda stjóranum nýjan samning

Ætla að bjóða umdeilda stjóranum nýjan samning
Canon

Mynd: EPA

Enska B-deildarfélagið Southampton ætlar að setjast niður með Tonda Eckert, stjóra liðsins, og ræða nýjan samning. Þetta kemur fram í enskum miðlum.
Samningur Eckert rennur út á næsta ári en viðræður um framlengingu voru settar á ís á meðan beðið var eftir niðurstöðu í hinu svokallaða 'Spygate-máli'.

Óttast var að Þjóðverjinn fengi langt bann frá hliðarlínunni en hann slapp með skrekkinn og fékk sex vikna skilorðsbundið bann sem gildir út tímabilið.

Eckert og þjálfarateymi hans fóru heldur betur yfir strikið í vor þegar þau sendu njósnara á æfingasvæði Middlesbrough til að fylgjast með æfingum liðsins fyrir umspilið um sæti í úrvalsdeildinni.

Southampton var í kjölfarið dæmt úr leik og Middlesbrough komst í úrslit umspilsins á kostnað Southampton. Þar beið liðið hins vegar lægri hlut gegn Hull City.

Dragan Solak, eigandi Southampton, stóð þétt við bakið á Eckert í gegnum allt málið þrátt fyrir að félaginu hefði verið vísað úr umspilinu.

Nú vill Solak framlengja samning Þjóðverjans og um leið koma í veg fyrir að stærri félög freistist til að fá hann til sín.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.