Fotbolti.net
13.10.26 - 21:46
Brynjar Ingi Erluson

Carrick: Ekki rétti tíminn til að tjá mig um það

Michael Carrick

Michael Carrick

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir 2-0 tap liðsins gegn Atlético Madríd í Meistaradeildinni í kvöld.
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
TENGT EFNI

Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd

Carrick var ágætlega sáttur með frammistöðu United á köflum en fannst liðið ekki gera nóg til að fá eitthvað út úr leiknum.

„Ég er með blendnar tilfinningar. Það er erfitt að koma hingað og þegar þú byrjar leikinn svona ertu strax kominn í erfiða stöðu. Mér fannst okkur hins vegar takast ágætlega að vinna okkur inn í leikinn.“

„Við náðum betri stjórn á leiknum í síðari hálfleik en náðum ekki að skapa nægilega mikla hættu. Bruno fékk svo gott færi áður en rauða spjaldið kom, sem mér fannst vera mjög slæm ákvörðun.“

„Ég er vonsvikinn með að hafa ekki nýtt færin okkar betur og að okkur hafi ekki tekist að skapa fleiri.“

„Við reyndum að gera hlutina aðeins öðruvísi. Varnarlega vorum við kannski að færa okkur of mikið til. Okkur fannst við eiga góða möguleika í þessum leik og það er það sem veldur mestum vonbrigðum. Við hefðum getað og átt að fá meira út úr honum.“

„Við verðum að finna leið til að bæta okkur, það er alveg ljóst. En það má heldur ekki dæma okkur eingöngu út frá þessum leik. Þetta er Meistaradeildin og það er erfitt að koma hingað. Við gerðum ýmislegt ágætlega.“


Eftir leikinn gagnrýndi Lisandro Martínez, leikmaður United, stjórnarmenn félagsins harðlega fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega í sumar.

Carrick var spurður út í ummæli Martínez en sagðist ekki hafa séð þau og vildi því lítið tjá sig um málið.

„Ég hef ekki séð þessi ummæli. Eftir svona leiki eru vonbrigðin mikil, sérstaklega þegar maður kemur hingað og ætlar sér að ná góðum úrslitum. Þá geta tilfinningarnar tekið yfir. Ég hef ekki séð hvað hann sagði og því er þetta ekki rétti tíminn fyrir mig til að tjá mig um það.“

„Okkur er öllum annt um félagið og við sýnum það á mismunandi hátt. Nú þurfum við hins vegar að standa saman og vinna okkur í gegnum þetta,“ sagði Carrick.
Martínez skaut fast á stjórn United eftir leikinn

Martínez skaut fast á stjórn United eftir leikinn

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.