Fotbolti.net
13.10.26 - 23:07
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Draumakvöld hjá manninum sem hafnaði Klopp og Mancini

Nicolo Tresoldi fagnaði af innlifun gegn Inter

Nicolo Tresoldi fagnaði af innlifun gegn Inter

Canon

Mynd: EPA

Ítalsk-þýski framherjinn Nicolo Tresoldi skoraði þrennu þegar Club Brugge vann dramatískan 4-3 sigur á Ítalíumeisturum Inter í Mílanó í kvöld. Sigurinn var sérstaklega ljúfur fyrir Tresoldi.
Sagði nei við Klopp og Mancini - „Sýnir að ég er á réttri leið“
TENGT EFNI

Sagði nei við Klopp og Mancini - „Sýnir að ég er á réttri leið“

Tresoldi er 22 ára gamall og hefur vakið áhuga margra stórliða í Evrópu.

Hann hefur raðað inn mörkum fyrir Club Brugge og U21 landslið Þýskalands en á enn eftir að ákveða hvort hann vilji spila fyrir A-landslið Þýskalands eða Ítalíu.

Á dögunum greindi faðir hans frá því að Tresoldi ætti sér aðeins eitt draumafélag, AC Milan. Hann var jafnframt spurður hvort sonur hans gæti hugsað sér að ganga til liðs við erkifjendurna í Inter en efaðist stórlega um það.

„Ég er ekki viss um að hann myndi samþykkja það. Hjartað myndi ráða för því það hefur alltaf verið draumur hans að spila fyrir AC Milan. Hann heillaðist af Inzaghi, Kaka og Pato og það var ómögulegt að fá hann til að hugsa um eitthvað annað,“ sagði faðir Tresoldi við Gazzetta dello Sport.

Tresoldi hefur skorað fjögur mörk í Meistaradeildinni á tímabilinu og miðað við áhugann á honum gæti reynst erfitt fyrir Brugge að halda honum þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Barcelona, Borussia Dortmund, RB Leipzig, Manchester United og Tottenham eru á meðal þeirra félaga sem hafa augastað á framherjanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.