13.10.26 - 21:07
Magnús Atlason
Fanney spilaði sinn fyrsta landsleik í tvö ár: Ekkert nema gott um hana að segja

Fanney Inga Birkisdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fanney þurfti lítið að gera í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fanney Inga Birkisdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fanney Inga Birkisdóttir spilaði sinn fyrsta landsleik í tvö ár. Þorsteinn Halldórsons var spurður út í Fanney á blaðamannafundinum eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 5 - 0 Króatía
"Mér fannst þetta góður tímapunktur að Fanney spilaði af því það eru rúm tvö ár síðan Fanney spilaði landsleik. Hún var frábær fyrir okkur þá, hún spilaði held ég á móti Póllandi í júlí 2024, meiðist svo um haustið og missir sætið sitt þá."
"Mér finnst alltaf mikilvægt að markmenn fái einhverja leiki. Fyrst þegar ég var að taka við Cecilía í þeirri stöðu að hún var markmaður númer tvö en ég gaf henni samt leiki. Þá voru reyndar fleiri æfingaleikir, við vorum að spila fleiri leiki á móti slakari liðum, meira að segja gegn liðum sem eru lægra rönkuð en Króatía. Svo mér fannst þetta tilvalið tækifæri til að gefa Fanney leik.
"Ég veit að Fanney er frábær markmaður. Ég hef ekkert nema gott um hana að segja. Hún var frábær fyrir okkur í undankeppni EM. Þetta var eitthvað sem mér fannst ég þurfa að gera."
Fanney hafði þrátt fyrir tækifærið, lítið tækifæri á að sanna sig því Króatar ógnuðu svo gott sem ekkert.
"Það var eitt skot og tíu sendingar til baka. Það var ekki mikið í gangi. En það gerðist af því hún er góð í að skipuleggja liðið í kringum sig og tala og stýra."