Fotbolti.net
13.10.26 - 18:41
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeildin: Sögulegt kvöld hjá Suarez og Sabah

Suarez er markahæsti leikmaður Sporting í Meistaradeildinni

Suarez er markahæsti leikmaður Sporting í Meistaradeildinni

Canon

Mynd: EPA

Kólumbíski framherjinn Luis Suarez skráði nafn sitt í sögubækur Sporting þegar hann skoraði í 2-0 sigri portúgalska liðsins á Lens í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sabah frá Aserbaísjan fagnaði einnig sögulegum áfanga með sínum fyrsta sigri í deildarkeppninni.
Suarez var fenginn til Sporting sem arftaki Viktor Gyökeres þegar Svíinn yfirgaf félagið á síðasta ári og hefur hann heldur betur fetað í fótspor hans.

Hann kom Sporting yfir gegn Lens á 22. mínútu með sínu sjöunda marki í Meistaradeildinni og varð þar með markahæsti leikmaður Sporting í sögu keppninnar.

Suarez fór með markinu fram úr Liedson, Gyökeres og Francisco Trincao sem hafa allir skorað sex mörk fyrir félagið í keppninni.

Issa Doumbia tryggði Sporting síðan sigurinn þegar stundarfjórðungur var til leiksloka er hann slapp inn fyrir og lagði boltann undir markvörð Lens sem kom út á móti.

Sporting er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar en Lens er með þrjú stig.

Sabah frá Aserbaísjan vann þá sinn fyrsta leik í deildarkeppninni þegar liðið lagði Slavía Prag, 2-0, í Bakú.

Sabah steinlá gegn Manchester United, 4-0, í fyrstu umferðinni en svaraði heldur betur fyrir sig í kvöld. Kaheem Parris kom liðinu yfir á 49. mínútu með frábæru skoti eftir skyndisókn áður en Joy-Lance Mickels innsiglaði sigurinn undir lok leiks.

Stórglæsilegur sigur hjá Sabah sem heldur áfram að skrifa sögu sína í Meistaradeildinni.

Lens 0 - 2 Sporting
0-1 Luis Suarez ('22 )
0-2 Issa Doumbia ('74 )

Sabah FK 2 - 0 Slavia Praha
1-0 Kaheem Parris ('49 )
2-0 Joy-Lance Mickels ('88 )
Sabah náði í sögulegan sigur gegn Slavía Prag

Sabah náði í sögulegan sigur gegn Slavía Prag

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.