Fotbolti.net
13.10.26 - 19:07
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu fyrsta landsliðsmark Kötlu

Stelpurnar fagna marki Kötlu

Stelpurnar fagna marki Kötlu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Katla Tryggvadóttir skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark þegar hún kom Íslandi í 3-0 gegn Króatíu í HM-umspilinu á Laugardalsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 5 - 0 Króatía
Íslenska liðið hefur gjörsamlega yfirspilað Króatíu og er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í úrslitum HM-umspilsins þar sem það mætir annaðhvort Portúgal eða Norður-Írlandi.

Staðan var 2-0 í hálfleik eftir mörk frá Ídu Marín Hermannsdóttur og Hlín Eiríksdóttur.

Snemma í síðari hálfleik bætti Katla við þriðja markinu, sem var jafnframt hennar fyrsta fyrir A-landsliðið.

Hlín vann boltann og átti frábæra sendingu inn á Sveindísi sem var í góðu færi. Hún renndi boltanum til hliðar á Kötlu sem lét ekki bjóða sér það tvisvar og skoraði með skoti undir markvörð Króata.

Markið má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.