Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 13. nóvember 2020 21:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alberto pirraður á Lazio: Flott flugvél en borgið okkur laun
Mynd: Getty Images
Luis Alberto hefur tjáð sig á Instagram um nýja einkaflugvél sem Lazio keypti.

„Mjög flott, félagið eyddi miklum peningum en borgar okkur ekki," skrifaði Alberto.

Luis Alberto hafði áður tjáð sig á Twitch: „Ég sá flugvélina en við þurfum að borga fyrir hana. Þeir kaupa hluti en borga okkur ekki."

Alberto er ósáttur við vangoldin laun frá síðustu leiktíð þegar nokkur félög ákváðu að lækka laun leikmanna vegna heimsfaraldursins.

Alberto bætti seinna við á Instagram: „Allt mjög flott og allt það en hvenær verður samið við fólkið í félaginu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner