Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. nóvember 2020 07:00
Magnús Már Einarsson
KÞÍ 50 ára í dag
Mynd: KÞÍ
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) fagnar 50 ára afmæli í dag, föstudaginn 13. nóvember. KÞÍ var stofnað árið 1970 en það var Albert Guðmundsson þáverandi formaður Knattspyrnusambands Íslands, sem var helsti hvatamaður þess.

KÞÍ sinnir fræðslumálum þjálfara eftir fremsta megni og stendur árlega fyrir fræðsluviðburðum, ýmist sjálfstætt eða í samvinnu við KSÍ. Þá hefur stjórn félagsins veitt félagsmönnum sínum styrki til endurmenntunar erlendis. Önnur verkefni stjórnar snúa meðal annars að aðstoð við félagsmenn, en oft lúta slík mál að starfslokum þjálfara þar sem misvel er staðið að málum hjá félögum.

Til stóð að fagna afmælisárinu 2020 með ýmsum viðburðum og ráðstefnuhaldi en það hefur verið óframkvæmanlegt vegna aðstæðna eins og kunnugt er. Í tilefni stórafmælisins gefur KÞÍ út glæsilegt afmælisrit, sem kemur út bæði rafrænt og á prenti og inniheldur ýmsar áhugaverðar greinar og viðtöl við þjálfara.

Vonandi verður blaðið mikilvæg söguleg heimild um starfsemi KÞÍ. Loks kynnir félagið nýja og endurbætta heimasíðu KÞÍ (kthi.is) og nýtt merki félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner