Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
   mið 13. nóvember 2024 14:01
Elvar Geir Magnússon
Spáni
Þýskur bankagjaldkeri dæmir Svartfjallaland - Ísland
Icelandair
Jablonski gaf rautt spjald þegar hann dæmdi leiks Svíþjóðar og Eistlands.
Jablonski gaf rautt spjald þegar hann dæmdi leiks Svíþjóðar og Eistlands.
Mynd: EPA
Dómari úr þýsku Bundesligunni mun dæma landsleik Svartfjallalands og Íslands sem fram fer í borginni Niksic á laugardaginn.

Hann heitir Sven Jablonski og er 34 ára gamall. Hann hefur verið að dæma í Evrópudeildinni og þá dæmdi hann fyrr á árinu Þjóðadeildarleik Svía og Eista.

Hann starfar sem bankagjaldkeri auk dómgæslunnar og hefur dæmt áður hjá íslensku landsliði en það var markalaus leikur Íslands og Grikklands á EM U19 á Möltu á síðasta ári.

Allt dómarateymið á laugardag kemur frá Þýskalandi; aðstoðardómarar verða Lasse Koslowski og Eduard Beitinger, fjórði dómari verður svo Tobias Reichel.

Ef Ísland vinnur Svartfjallaland og Wales vinnur ekki Tyrkland á sama tíma þá verður leikur Wales og Íslands í Cardiff á þriðjudag úrslitaleikur um annað sæti riðilsins. Ef Ísland gerir jafntefli á laugardag og Wales tapar verður leikurinn á þriðjudag líka úrslitaleikur.

Ísland er sem stendur í þriðja sæti en það sæti er umspil um að halda sér í B-deildinni.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner