Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 14. janúar 2020 15:30
Elvar Geir Magnússon
Man City vill ekki selja Stones til Arsenal
John Stones og Pep Guardiola.
John Stones og Pep Guardiola.
Mynd: Getty Images
Arsenal er sagt hafa áhuga á því að fá varnarmanninn John Stones. Manchester City hefur hinsvegar engan áhuga á að selja miðvörðinn núna í janúarglugganum.

Mikel Arteta stjóri Arsenal var í þjálfarateymi City og hann vill laga varnarleikinn á nýja vinnustaðnum.

The Manchester Evening News segir að Stones og Arteta hafi myndað náið samband hjá City og þá eru þeir hjá sama umboðsmanninum.

Sagt er að Stones hafi fundað með umboðsmanni sínum á dögunum og rætt um fáar spilmínútur.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Stones á tímabilinu en Pep Guardiola hefur líka horft framhjá honum þrátt fyrir að hann sé heill.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner