Hinn 39 ára gamli Dani Alves er í brasilíska landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Ekvador og Paragvæ.
Alves er nýbúinn að spila endurkomuleik sinn fyrir Barcelona en hann gekk aftur í raðir félagsins í byrjun mánaðar.
Brasilía spilar leiki í undankeppni HM gegn sterkum andstæðingum en er nú þegar búið að tryggja sæti sitt í lokakeppninni.
Alves á að baki 119 leiki fyrir Brasilíu en undanfarin tvö ár spilaði hann með Sao Paulo í heimalandinu.
Gabriel, varnarmaður Arsenal, var einnig valinn í hópinn í annað sinn en hann á eftir að leika landsleik.
Gabriel er 24 ára gamall og hefur leikið 17 leiki fyrir Arsenal í úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Athugasemdir