Roma er að búa sig undir leik gegn Cagliari á sunnudaginn en Jose Mourinho er búinn að skella í lás og enginn fær að horfa á æfingar liðsins.
Markmið Roma er að ná Meistaradeildarsæti en liðið er nú níu stigum á eftir Atalanta sem er í fjórða sætinu.
Markmið Roma er að ná Meistaradeildarsæti en liðið er nú níu stigum á eftir Atalanta sem er í fjórða sætinu.
Roma missti niður tveggja marka forystu gegn Juventus í síðustu viku.
Il Corriere dello Sport segir að Mourinho hafi verið mjög reiður þegar upplegg hans lak út í fjölmiðla fyrir leikinn gegn Venezia fyrir áramót. Mourinho fór yfir í þriggja manna vörn í Feneyjum.
Mourinho hefur gagnrýnt eigin leikmenn í viðtölum en margir ítalskir fjölmiðlamenn beina spjótum að Mourinho en Roma er án sigurs í síðustu þremur leikjum.
Athugasemdir