Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 14. janúar 2022 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Selma Sól á reynslu hjá Rosenborg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Breiðabliks, er á reynslu þessa dagana hjá norska félaginu Rosenborg. Það er Orri Rafn Sigurðarson sem vekur athygli á þessu á Twitter.

Selma er 23 ára og er uppalin hjá Breiðabliki. Hún á að baki sextán landsleiki.

Rosenborg endaði í öðru sæti norsku deildarinnar í fyrra, fjórum stigum á eftir Sandviken/Brann.

Hólmar Örn Eyjólfsson er leikmaður karlaliðs Rosenborg.

„Selma Sól Magnúsdóttir leikmaður Breiðablik er á reynslu hjá stórliði Rosenborg í Noregi. Selma sem er 23 ára, getur leyst margar stöður á vellinum og hefur verið orðrómur um að hún væri á leið erlendis, síðan að íslenska tímabilinu lauk," skrifaði Orri.


Athugasemdir
banner
banner