Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. janúar 2023 13:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Grealish kom inn á og braut ísinn
Mynd: Getty Images

Manchester City er komið með forystuna í grannaslagnum á Old Trafford en það var Jack Grealish sem skoraði markið eftir klukkutíma leik.


Þetta var fyrsta tilraun City á markið en Marcus Rashford komst í tvö álítleg færi í fyrri hálfleik og hefði getað komið United í forystuna.

Grealish byrjaði á bekknum í dag en kom inn á snemma í síðari hálfleik og var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn.

Hann kom af fullum krafti inn í teiginn og stangaði fyrirgjöf frá Kevin de Bruyne í netið.

Markið má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner
banner