Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. febrúar 2021 11:10
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Southampton og Wolves: Armstrong byrjar
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Southampton og Wolves eigast við í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en þessi félög hafa bæði verið að spila undir getu á tímabilinu og sitja í neðri hluta deildarinnar.

Ralph Hasenhüttl gerir tvær breytingar á byrjunarliði heimamanna eftir tap gegn Newcastle í síðustu umferð.

Kyle Walker-Peters og Stuart Armstrong koma inn í byrjunarliðið fyrir Jack Stephens og Che Adams.

Nuno Espirito Santo gerir eina breytingu eftir markalaust jafntefli gegn Leicester um síðustu helgi. Romain Saiss tekur stöðu Max Kilman í varnarlínunni.

Tvö stig skilja liðin að í neðri hluta úrvalsdeildarinnar og er hægt að búast við miklum baráttuleik í dag.

Southampton: McCarthy, Walker-Peters, Bertrand, Vestergaard, Bednarek, Romeu, Ward-Prowse, Minamino, Armstrong, Redmond, Ings.
Varamenn: Forster, Stephens, Adams, Djenepo, Salisu, Tella, N'Lundulu, Watts, Chauke.

Wolves: Patricio, Jonny, Semedo, Coady, Saiss, Dendoncker, Neves, Moutinho, Neto, Traore, Jose.
Varamenn: Ruddy, Hoever, Ait-Nouri, Marcal, Fabio Silva, Gibbs-White, Vitinha, Kilman, Otasowie.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner