| þri 14.apr 2026 14:30 Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson |
|
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 10. sæti
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í tíunda sæti er Grótta sem eru að koma upp sem nýliðar.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig
10. Grótta
Seltirningar stoppuðu ekki lengi í 2. deild, voru bara þeir í eitt ár og eru komnir aftur upp í Lengjudeildina. Grótta fór í uppbyggingu við fallið úr Lengjudeildinni sumarið 2024 og voru lengi í gang í 2. deild í fyrra. Þegar þeir komust hins vegar í gang, þá voru þeir illviðráðanlegir og þeir enduðu mótið frábærlega. Það réðist í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni hvort Grótta færi upp eða Þróttur Vogum og þar voru Gróttumenn sterkari á svellinu, unnu 2-0 sigur þar sem Andri Freyr Jónasson og Kristófer Dan Þórðarson skoruðu mörkin. Síðast þegar Grótta lék í Lengjudeildinni þá skítféllu þeir en ef þessi spá rætist þá halda þeir sér uppi í sumar og það er klárlega eitthvað sem stefnt er að á Seltjarnarnesinu.
Þjálfarinn: Rúnar Páll Sigmundsson var ráðinn þjálfari Gróttu fyrir síðasta tímabil. Rúnar Páll er öflugur þjálfari sem stýrði Stjörnunni frá 2014 til 2021. Á þeim tíma varð Stjarnan bæði Íslands- og bikarmeistari, ásamt því að fara í mikið og eftirminnilegt Evrópuævintýri. Rúnar Páll stýrði Fylki áður en hann tók við Gróttu. Þetta er öðruvísi verkefni en hann hefur tekist á við áður, en enn sem sem komið er þá virðist hann og félagið passa mjög vel saman. Rúnar er reynslumikill í þessum bransa og það mun koma Gróttu vel í sumar.
Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Hann ætlar ekkert að falla í ár
„Gróttumenn eru að mæta aftur í Lengjudeildina eftir stutta fjarveru eftir að hafa nælt sér í 2. sætið í 2. deildinni eftir mikla baráttu og mikinn eltingarleik allt sumarið."
„Grótta býr vel að þeirri reynslu að hafa verið stabíll Lengjudeildarklúbbur áður ásamt því að vera staðsett á höfuðborgarsvæðinu sem auðveldar að mörgu leyti það að fá öfluga leikmenn til að styrkja liðið, eins og sést með innkomu Tristans sem er frábær leikmaður."
„Einnig er gríðarlega reynsla í þjálfarateyminu, Rúnar Páll veit nákvæmlega hvað hann er að gera og hann ætlar ekkert að falla í ár."
Lykilmenn: Grímur Ingi Jakobsson og Björgvin Brimi Andrésson
Grímur er miðjumaður sem er uppalinn í Gróttu. Hann er góður á boltanum og spilar stóran þátt í uppspilinu. Hann er fyrirliði liðsins og er mikilvægur innan sem utan vallar. Björgvin Brimi er leikmaður sem sló í gegn hjá Gróttu síðasta sumar og var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar. Hann var í kjölfarið sóttur til Íslandsmeistara Víkings en þeir lánuðu hann aftur á Nesið og fær hann þar góða reynslu í Lengjudeildinni í sumar. Mjög sprækur kantmaður sem mun spila mikilvægt hlutverk í sóknarleik Gróttu í sumar. Hann er yngri bróðir Benónýs Breka, sem er leikmaður Stockport á Englandi, og það er greinilegt að það eru sterk fótboltagen í fjölskyldunni.
Gaman að fylgjast með: Tristan Freyr Ingólfsson
Tristan Freyr skoraði sigurmark Gróttu í 1-0 sigri á Álftanesi í Mjólkurbikarnum en hann hefur verið að koma sterkur inn hjá Gróttu að undanförnu. Hann er aftur kominn á völlinn eftir að hafa verið meira og minna fjarri góðu gamni vegna meiðsla í fimm ár. Hann spilaði síðast reglulega tímabilið 2021 með Stjörnunni. Það eru margir sem hefðu gefist upp í hans stöðu en hann gerði það ekki. Klárlega leikmaður til að fylgjast með í sumar.
Komnir:
Nökkvi Már Nökkvason frá ÍBV
Emil Skúli Einarsson frá Þrótti R.
Guðmundur Rafn Ingason frá KFG
Jónatan Ari Bragason frá Leikni
Tristan Freyr Ingólfsson frá Stjörnunni
Andri Freyr Jónasson alfarið frá Aftureldingu (var á láni)
Mattías Kjeld frá Val
Farnir:
Pétur Theódór Árnason hættur
Marvin Darri Steinarsson í Vestra
Marciano Aziz til Þýskalands
Þórður Sveinn Einarsson í Val (var á láni)
Kristófer Melsted í Kríu
Samningslausir:
Björgvin Stefánsson
Valdimar Daði Sævarsson
Benedikt Aron Albertsson
Fyrstu þrír leikir Gróttu:
25. apríl, HK - Grótta (Kórinn)
1. maí, Grótta - Leiknir R. (Vivaldivöllurinn)
9. maí, Ægir - Grótta (GeoSalmo völlurinn)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð