14.05.17 - 21:14
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Óli Stefán: Ég spila úr þeim spilum sem mér er gefið
Auglýsing

Óli Stefán, þjálfari Grindvíkinga

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Grindavík tapaði 3-1 fyrir Víking Ólafsvík á heimavelli í kvöld og var Óli Stefán ekki ánægður með leik sinna manna.
„Þetta var ekki gott. Sérstaklega kafli í seinni hálfleik. Það sem er alltaf til staðar hjá Grindavík, við vorum undir í því. Við þurfum að vera klárir í návígin, við þurfum að vera klárir í baráttu og tæklingar og vera einbeittir og skarpir þar. En þar urðum við undir og það hreinlega kostaði okkur. Leikurinn fer svolítið inn á þeirra styrkleika og þar töpum við bara,\" sagði Óli Stefán.
Eftir jafnan fyrri hálfleik komu Víkingar af krafti til leiks í þeim síðari og skoruðu tvö mörk á skömmum tíma. Óli Stefán var ekki ánægður með það.
„Við bara mættum ekki með fókusinn í lagi inn í seinni hálfleikinn því að fimm mínútur inn í seinni hálfleikinn erum við 2-0 undir eftir tvö horn. Það er bara alveg skelfilegt en það er í rauninni það sem drepur okkur í dag.\"
Félagaskiptaglugginn lokar á morgun og ætlar Óli Stefán ekki að styrkja hópinn meira.
„Ég tek ekki fleiri leikmenn. Ég spila úr þeim spilum sem mér er gefið og ég er búinn að leggja út mína hönd.\"
Jón Ingason gekk til liðs við Grindavík frá ÍBV í vikunni og spilaði hann allan leikinn í dag. Óli Stefán var ánægður með hann.
„Hann stóð sig mjög vel. Hann kom inn og það er ekkert við hann að sakast. Hann gerði það sem ég bað hann um mjög vel.\"
Óli Stefán gaf það út í allan vetur að hann væri að leita að erlendum hafsent en sá hafsent kom aldrei.
„Við vorum að leita erlendis en það kom ekkert út úr því. Þetta er það sem við erum með og stöndum og föllum með.\"