Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. maí 2019 17:47
Ívan Guðjón Baldursson
Alex Þór skrifar undir þriggja ára samning
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn efnilegi Alex Þór Hauksson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Stjörnuna.

Alex Þór, fæddur 1999, á 56 keppnisleiki að baki fyrir Stjörnuna og varð bikarmeistari með liðinu í fyrra.

Alex spilaði sinn fyrsta A-landsleik í janúar og á 28 leiki að baki fyrir yngri landsliðin, þar af 8 fyrir U21 liðið.

Hann hefur farið vel af stað í sumar og var valinn maður leiksins af Fótbolta.net í 1-0 sigri Stjörnunnar á HK um helgina.




Athugasemdir
banner
banner
banner