Anthony Gordon gæti verið á leið til Þýskalands, liðsfélaga Orra Steins Óskarsson er orðaður við tvö stórlið á Englandi og þá er Man Utd reiðubúið með formlegt tilboð í enska landsliðsmanninn Elliot Anderson. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins!
Bayern München hefur náð samkomulagi við Anthony Gordon (25) og hafið viðræður við Newcastle um enska sóknarmanninn. (Bild)
Chelsea og Manchester United eru með Ander Barrenetxea (24), sóknarmann Real Sociedad, á óskalistanum fyrir sumarið. (Marca)
Man Utd er reiðubúið að leggja fram formlegt tilboð í Elliot Anderson (23), miðjumann Nottingham Forest og enska landsliðsins. (Give Me Sport)
Chelsea og Galatasaray hafa áhuga á Jonathan Rowe (23), leikmanni Bologna á Ítalíu. (Gazzetta dello Sport)
Þýski sóknarmaðurinn Nick Woltemade (24) er óánægður hjá Newcastle. Atlético Madríd er meðal félaga sem eru að fylgjast með stöðu Þjóðverjans. (Bild)
Mason Greenwood (24), sóknarmaður Marseille, ætlar að vera áfram hjá félaginu þrátt fyrir að vera orðaður við félög á borð við Juventus, Borussia Dortmund og Atlético. (Sun)
Marseille ætlar ekki að nýta kaupákvæði í lánssamningi franska varnarmannsins Benjamin Pavard, en hann er á láni frá Inter. (Bild)
Tottenham er á eftir bosníska varnarmanninum Tarik Muharemovic (23) sem er á mála hjá Sassuolo á Ítalíu. Hann er metinn á 30 milljónir punda. (Caught Offside)
Fílabeinsstrendingurinn Yan Diomande, sem er metinn á 80 milljónir punda, hefur verið orðaður við bæði Chelsea og Liverpool, en þessi 19 ára gamli leikmaður er þó ekkert að flýta sér að fara frá Leipzig. (Athletic)
Leeds er að fylgjast með Lois Openda (26), sem er á láni hjá Juventus frá Leipzig. (Teamtalk)
West Ham og Crystal Palace eru að skoða Pape Moussa Fall (21), stóran og stæðilegan framherja Metz í Frakklandi. Senegalinn, sem er 2,03 sm á hæð, er á láni hjá belgíska félaginu RAAL La Louviere. (Teamtalk)
Man Utd ætlar að selja kamerúnska markvörðinn Andre Onana (30) í sumar, en hann hefur eytt þessu tímabili á láni hjá Trabzonspor í Tyrklandi. (ESPN)
United er einnig tilbúið að bjóða hinum fertuga Tom Heaton nýjan samning, en hann er þriðji markvörður liðsins. (Caught Offside)




