Fotbolti.net
14.05.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

U21 landsliðið kemur ekki saman í júní

U21 landsliðið kemur ekki saman í júní
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Þrátt fyrir að það sé alþjóðlegur landsleikjaglugga mun íslenska U21 landsliðið ekki koma saman í byrjun næsta mánaðar.

Liðið á engan leik og því verður ekkert verkefni. Heilt yfir eru fá U21 landslið með skráða leiki í komandi glugga, en þó mætir t.d. Tyrkland liði Kósovó og Ítalía mætir Albaníu í æfingaleikjum.

U21 landsliðið á tvo leiki eftir í undankeppninni fyrir EM 2027 en spilar ekki lokaleikina fyrr en í haust.
Leikirnir sem Ísland á eftir í undankeppninni
þriðjudagur 29. september
Ísland-Sviss (Þróttarvöllur)

þriðjudagur 6. október
Færeyjar-Ísland

Íslenska A-landsliðið mætir Japan (31. maí) og Argentínu (10. júní) í vináttuleikjum og U19 karla á leiki gegn Svartfjallalandi (6. júní) og Georgíu (9. júní) en eftir á að tilkynna hópinn fyrir þá leiki.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Frakkland6+1716
2Sviss7+514
3Ísland7+511
4Færeyjar7-79
5Lúxemborg6-74
6Eistland7-132
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.