„Hæfileikaríkir leikmenn sem eru til í að leggja sig fram fyrir félagið"
Auglýsing

Jóhannes Karl Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er virkilega ánægður með strákana," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, eftir 3-1 sigur gegn KA í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar karla í dag.
„Það sem þeir voru búnir að leggja á sig til að undirbúa sig fyrir þennan fyrsta leik, það tóku þeir með sér inn á völlinn þó svo að byrjunin hafi ekki alveg verið það sem við lögðum upp með. Frábær frammistaða hjá öllum leikmönnunum í dag."
Umræðan hefur verið nokkur um ÍA, til dæmis um slæma fjárhagsstöðu og að önnur félög líti hýrum augum til leikmanna félagsins.
„Umræðan er eins og umræðan er. Við höfum ekki látið hana áhrif á okkur því að umræðan hefur verið röng, við erum í fínum málum með leikmannahópinn. Við erum frábæra hæfileikaríka leikmenn sem eru tilbúnir að leggja sig fram fyrir félagið. Það er það sem skiptir okkur máli. Við vitum alveg hvað við erum að gera, við vitum hvernig umgjörðin er og hvernig hópurinn er. Það er aðalatriðið fyrir okkur."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan þar sem Jóhannes Karl ræðir meðal annars um leikstíl ÍA.