
Fagnar hér marki með U17 síðasta haust. Hefur alls spilað 17 leiki fyrir unglingalandsliðin og skorað tvö mörk.
Stjörnumaðurinn Alexander Máni Guðjónsson mun, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, ganga í raðir danska félagsins Midtjylland í sumar; Stjarnan og Midtjylland hafa náð samkomulagi sín á milli.
Hann verður 16 ára eftir þrjá daga og mun í kjölfarið skrifa undir hjá danska félaginu.
Hann verður 16 ára eftir þrjá daga og mun í kjölfarið skrifa undir hjá danska félaginu.
Hann þreytti frumraun sína með Stjörnunni í fyrra og var á blaði hjá stórum félögum erlendis. Þar á meðal voru FC Kaupmannhöfn og Benfica. En Midtjylland varð fyrir valinu.
Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, en hann vildi ekki tjá sig um félagaskiptin fyrr en þau yrðu frágengin.
„Hann verður í hóp hjá okkur gegn Val og vonandi fer hann að ná einhverjum mínútum með okkur. Þetta hafa verið erfiðir leikir, við viljum sjá hann inn á vellinum. Það er búið að vera smá hökt á honum með einhver meiðsli í vetur og vor, en hann er að koma mjög flottur inn."
„Hann er efnilegur og góður í mörgu, en hans sterkasti eiginleiki er karakterinn. Það er það sem fær mann til að hafa mikla trú á honum upp á hans feril. Hann er mjög sterkur karakter, mikil orka og útgeislun í kringum hann, hjálpar liðinu og vinnur fyrir það. Hann er með frábær hlaup, tæknilega góður og frábær í að klára færi."
„Hann er með allt þetta sem þarf, en hann er með hitt sem mér finnst mikilvægara. Það er það sem er stærri faktor og mjög gaman að sjá það."
Alexander er sonur framherjans Guðjóns Baldvinssonar. Jökull er tveimur árum eldri en Guðjón og man vel eftir honum.
Er hann með hlaupagetuna sem pabbi hans var með?
„Ef við tölum einhvern tímann um liðsmann, þá er það í tilfelli pabba hans. Hann var sóknarmaður sem varnarmenn fengu aldrei frið fyrir."
„Ég held að Alexander sé með hlaupagetuna og með hjálp og leiðsögn pabba síns finnst mér hann hafa möguleikann á að verða töluvert öflugri en sá gamli," segir Jökull.
Athugasemdir