Fotbolti.net
14.06.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Klopp er að ráða Demichelis til Leipzig

Klopp er að ráða Demichelis til Leipzig
Canon

Mynd: EPA

Martin Demichelis, fyrrum landsliðsmaður Argentínu og leikmaður FC Bayern og Manchester City, er að taka við þjálfarastarfinu hjá RB Leipzig.
Demichelis tók við stjórn á Mallorca í febrúar en mistókst að bjarga liðinu frá falli þrátt fyrir góða stigasöfnun. Liðið sótti 18 stig úr 12 deildarleikjum en endaði þrátt fyrir það á að falla, með 42 stig úr 38 umferðum sem er sjaldgæft.

Stjórnendur Mallorca gerðu nýjan samning við Demichelis í lok maí, þrátt fyrir fall, en nú er hann á leið til Þýskalands eftir samningstilboð frá Leipzig. Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.

Leipzig endaði í þriðja sæti þýsku deildarinnar undir stjórn Ole Werner á nýliðinni leiktíð og telur Jürgen Klopp hann ekki vera rétta manninn til að leiða félagið áfram.

Klopp er mjög hrifinn af Demichelis og er maðurinn á bakvið þjálfaraskiptin.

Demichelis hélt hann myndi fara inn í næsta tímabil sem þjálfari Mallorca í næstefstu deild á Spáni en þess í stað mun hann stýra RB Leipzig í efstu deild í Þýskalandi og deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.