Börsungar hóta að kæra Pérez fyrir rógburð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Barcelona er búið að gefa út opinera yfirlýsingu þess efnis að félagið hyggst kæra Florentino Pérez ef forseti Real Madrid dregur ekki nýleg ummæli sín til baka.
Börsungar eru að undirbúa lögsókn fyrir rógburð. Þeir birtu yfirlýsinguna til að vara Pérez við og gefa honum tækifæri til að draga orð sín til baka og sýna iðrun.
Stjórnendur Barcelona eru ósáttir með ummæli sem Pérez lét falla á fréttamannafundi 12. maí og svo í ítarlegu viðtali degi síðar. Þar ræddi hann Negreira málið svokallaða og sakaði Barcelona um óheflaða spillingu.
Pérez hefur oft talað um spillingarmálið (Negreira) án þess að dansa undir rós en þetta er hvorki í fyrsta né annað sinn sem hann er kærður fyrir rógburð.
Pérez og lögfræðiteymi hans hafa enn ekki tjáð sig eftir yfirlýsingu Barca.

TENGT EFNI
Barcelona gefur út yfirlýsingu eftir ásakanir Perez

Mynd: EPA