Fotbolti.net
14.06.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lewandowski lentur í Chicago

Lewandowski skoraði í heildina 120 mörk í 193 leikjum með Barcelona.

Lewandowski skoraði í heildina 120 mörk í 193 leikjum með Barcelona.

Canon

Mynd: EPA

Pólski framherjinn Robert Lewandowski er staddur í Bandaríkjunum þessa stundina ásamt umboðsmanni sínum Pini Zahavi.
Þeir eru á leið í viðræður við MLS félagið Chicago Fire sem er reiðubúið til að gefa Lewandowski tveggja til þriggja ára samning, eftir óskum leikmannsins.

Lewandowski verður 38 ára gamall í ágúst og skoraði 19 mörk í 46 leikjum með stórveldi Barcelona á nýliðnu tímabili en er núna samningslaus. Þessi goðsagnakennda markavél ætlar að halda áfram að spila fótbolta en er ekki viss hvar hentar best fyrir hann.

Stærstu félögin í Sádi-Arabíu eru einnig hrifin af Lewandowski ásamt fleiri félögum í Bandaríkjunum og Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.