Fotbolti.net
14.06.26 - 14:25
Brynjar Ingi Erluson

Vilja 60 til 70 milljónir punda fyrir Gakpo

Vilja 60 til 70 milljónir punda fyrir Gakpo
Canon

Mynd: EPA

Hollenski sóknarmaðurinn Cody Gakpo á að hafa upplýst enska úrvalsdeildarfélagið um að hann vilji yfirgefa félagið í sumarglugganum, en Tottenham Hotspur er talið leiða baráttuna um hann. SoccernewsNL segir frá.
Gakpo, sem kom til Liverpool frá PSV í byrjun árs 2023, er sagður hafa farið fram á sölu eftir að Arne Slot var rekinn frá félaginu eftir tímabilið.

Hollendingurinn hefur áhyggjur af því að hlutverk hans muni breytast verulega undir stjórn Andoni Iraola, sem var ráðinn í stað Slot.

SoccernewsNL segir að Liverpool sé opið fyrir því að selja Gakpo fyrir 60 til 70 milljónir punda og Tottenham er sagt undirbúa tilboð í þennan 27 ára gamla leikmann.

Gakpo, sem hefur skorað 32 mörk og lagt upp 18 í 127 leikjum í ensku úrvalsdeildinni fyrir Liverpool, er þessa stundina með hollenska landsliðinu sem spilar sinn fyrsta leik gegn Japan á HM í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.