Fotbolti.net
14.06.26 - 12:33
Brynjar Ingi Erluson

Neuer verður í markinu í kvöld

Neuer verður í markinu í kvöld
Canon

Mynd: EPA

Hinn fertugi Manuel Neuer mun standa í markinu í fyrsta leik Þjóðverja gegn Curacao á heimsmeistaramótinu í kvöld en þetta staðfesti Julian Nagelsmann, þjálfari landsliðsins, í gær.
Neuer lagði landsliðshanskana á hilluna eftir Evrópumótið fyrir tveimur árum.

710 dagar eru liðnir síðan hann spilaði síðast með landsliðinu, en frammistaða hans með Bayern á þessari leiktíð vakti verðskuldaða athygli og voru Þjóðverjar ekki alveg reiðubúnir að enda farsælt samstarf.

Þeir sannfærðu hann um taka fram hanskana með landsliðinu og kom því lítið á óvart þegar Nagelsmann tilkynnti 26 manna leikmannahóp sinn að Neuer hafi verið í honum.

Nagelsmann staðfesti síðan í gær að Neuer verði í markinu þegar Þýskaland mætir Curacao.

Oliver Baumann var aðalmarkvörður Þjóðverja í gegnum alla undankeppnina og átti flotta frammistöðu þar, en fær enga gulrót fyrir það og mun þurfa að lúffa fyrir Neuer, sem varð heimsmeistari með Þjóðverjum árið 2014.

Leikurinn hefst klukkan 17:00 og er í beinni útsendingu á RÚV2 og í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.