FIFA segir að tæknibilun hafi komið upp á mikilvægu augnabliki

Mynd: FIFA

Mynd: FIFA
Alþjóðafótboltasambandið, FIFA, hefur viðurkennt að VAR-tæknin hafi brugðist fyrir fyrsta mark leiksins í leik Sviss og Katar á heimsmeistaramótinu í gær.

TENGT EFNI
HM: Katar bjargaði stigi gegn Sviss
Breel Embolo skoraði af vítapunktinum fyrir Sviss eftir að Mahmud Abunada braut á Remo Freuler í teignum.
Þegar horft var á alla sóknina virtist sóknarmaður Sviss vera í rangstöðu þegar boltinn kom inn á teiginn. Aðeins stutt endursýning var sýnd af sókninni og síðan komu engar frekari skýringar á því hvort um rangstöðu hefði verið að ræða í aðdragandanum.
FIFA segir að vegna tæknilegra örðugleika hafi ekki verið hægt að sýna grafíkina. Samband hafi rofnað í skamma stund áður en það komst aftur á, en það hafi hins vegar ekki haft áhrif á dómgæsluna og sóknarmaðurinn hafi verið réttstæður.
„Á meðan leik Katar og Sviss á San Francisco Bay Area-leikvanginum stóð kom upp stutt tæknibilun sem kom í veg fyrir að grafík sem átti að sýna að ekki hefði verið um rangstöðu að ræða birtist áður en Sviss fékk vítaspyrnu á 14. mínútu. Vandamálið var fljótlega leyst.
„Þetta hafði ekki áhrif á vinnuferli VAR, sem fylgdi hefðbundnu verklagi við að yfirfara ákvörðun vallardómarans. Línurnar sem VAR notaði til að skoða stöðu viðkomandi leikmanna sýndu að sóknarmaðurinn hefði ekki verið rangstæður í hvorugu atvikinu stuttu fyrir vítaspyrnudóminn,“ sagði FIFA í yfirlýsingu sinni.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Katar náði í jöfnunarmark undir lok leiksins er Miro Muheim stangaði boltanum í eigið net eftir fyrirgjöf Al Amin.

During the Qatar vs. Switzerland match in the San Francisco Bay Area, a brief technical outage prevented the onside animation graphic from being generated ahead of the penalty awarded to Switzerland in the 14th minute. The issue was quickly resolved.
— FIFA Media (@fifamedia) June 13, 2026
The workflow of the VAR was… pic.twitter.com/ONpWxXDPE6
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!