Fotbolti.net
14.06.26 - 10:38
Brynjar Ingi Erluson

HM: Óvæntur sigur Ástralíu á Tyrklandi

Ástralska liðið vann frábæran sigur á Tyrklandi

Ástralska liðið vann frábæran sigur á Tyrklandi

Canon

Mynd: EPA

Ástralía 2 - 0 Tyrkland
1-0 Nestory Irankunda ('27 )
2-0 Conor Metcalfe ('75 )
Ástralska landsliðið vann óvæntan 2-0 sigur á Tyrklandi í D-riðli HM í Vancouver í Kanada í morgun. Markvörðurinn Patrick Beach, sem spilar með Melbourne City í heimalandinu, átti stórleik í marki Ástrala.

Fyrirfram var Tyrkland talið sigurstranglegra liðið enda með margar stórstjörnur innanborðs, á borð við Hakan Calhanoglu, Arda Güler og Kenan Yildiz.

Það var því allt samkvæmt plani í byrjun leiks. Tyrkir sóttu meira og áttu nokkur ágæt færi en náðu þó ekki að reyna nægilega mikið á Beach í markinu.

Á 27. mínútu dró til tíðinda. Langur bolti kom fram á vinstri vænginn á Nestory Irankunda, sem potaði boltanum framhjá varnarmanni og lagði hann síðan snyrtilega í nærhornið.

Tyrkir héldu áfram að sækja í átt að marki Ástrala og Abdulkerim Bardakci átti hörkuskot fyrir utan teig sem Beach varði í stöngina.

Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Ástralíu. Tyrkir ógnuðu helst með tilraunum fyrir utan teig og það hélt áfram í síðari hálfleik.

Arda Güler átti frábært skot úr aukaspyrnu sem Beach varði meistaralega og síðan varði hann annað skot frá Zeki Celik við nærstöngina.

Stundarfjórðungi fyrir leikslok kom annað mark Ástrala eins og þruma úr heiðskíru lofti. Conor Metcalfe var með boltann um það bil 25 metrum frá marki, þrumaði honum niðri í hægra hornið og Ugurcan Cakir átti ekki möguleika á að verja.

Áfram greip örvæntingin um sig hjá Tyrkjum. Þeir pressuðu og pressuðu. Kerem Akturkoglu fékk dauðafæri í miðjum teignum en Beach varði frá honum og skömmu síðar varði hann aftur aukaspyrnu Calhanoglu sem stefndi neðst í hægra hornið.

Mögnuð frammistaða hjá Ástralíu sem er komin með sinn fyrsta sigur. Ástralar áttu níu skot gegn 30 hjá Tyrkjum, en það eru mörkin sem telja. Tyrkland mætir Paragvæ á laugardag en Ástralía mætir gestgjöfum Bandaríkjanna.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Irankunda gerði laglegt mark

Irankunda gerði laglegt mark

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.