Fotbolti.net
14.06.26 - 13:22
Brynjar Ingi Erluson

Flestar markvörslur síðan Rustu Recber fór hamförum gegn Brasilíu

Flestar markvörslur síðan Rustu Recber fór hamförum gegn Brasilíu
Canon

Mynd: EPA

Patrick Beach var mikilvægur fyrir Ástralíu og hélt hreinu í óvæntum 2-0 sigri á Tyrklandi á heimsmeistaramótinu í morgun, en þetta er ein besta frumraun markvarðar í sögu mótsins.
Beach, sem er 22 ára gamall og á mála hjá Melbourne City í heimalandinu, er aðalmarkvörður Ástrala á mótinu. Það kom heldur betur á óvart, enda var búist við því að Mat Ryan myndi standa á milli stanganna.

Hann sýndi þjálfaranum að valið var hárrétt. Beach varði átta skot í leiknum og margar af vörslunum voru afar mikilvægar. Enginn markvörður hefur varið fleiri skot í einum leik í frumraun á HM síðan Rustu Recber fór á kostum á HM 2002 í Japan og Suður-Kóreu.

Recber fangaði hug og hjörtu fótboltaunnenda á því móti. Hann varði sjö skot í 2-1 tapi gegn Brasilíu í riðlakeppninni, en Brasilíumenn fóru alla leið og unnu mótið.

Tyrkneski markvörðurinn varði frábærlega frá Ronaldo, Rivaldo, Ronaldinho og Lucio í leiknum og átti síðan enn magnaðri frammistöðu í undanúrslitunum gegn Brasilíu, þar sem hann varði níu skot þrátt fyrir 1-0 tap.

Tyrkir fengu brons á mótinu og Recber var valinn í 16 manna úrvalslið mótsins, sem sýndi hversu mikilvægur hann var fyrir þjóð sína.

Enginn markvörður hefur varið fleiri skot á einu heimsmeistaramóti á þessari öld en Recber, sem átti 36 vörslur á HM 2002. Beach gæti mögulega bætt það met ef hann heldur áfram á sömu braut.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Flestar markvörslur síðan Rustu Recber fór hamförum gegn Brasilíu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.