Fotbolti.net
14.06.26 - 12:41
Brynjar Ingi Erluson

„Sjáum til hvað gerist eftir HM“

Manu Koné gæti fært sig um set í sumar

Manu Koné gæti fært sig um set í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Franski miðjumaðurinn Manu Koné gæti verið á förum frá ítalska félaginu Roma í sumar.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur spilað við góðan orðstír hjá Roma síðustu tvö ár og hjálpaði liðinu að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili.

Hann hefur verið fastamaður í landsliðshópnum hjá Didier Deschamps síðustu ár og fær nú loksins að spila á sínu fyrsta stórmóti.

Frammistaða hans með Roma og landsliðinu hefur eðlilega vakið mikla athygli og hefur hann meðal annars verið orðaður við Englandsmeistara Arsenal og Ítalíumeistara Inter, en Koné vildi tjá sig sem minnst um orðróminn rétt fyrir fyrsta leik Frakka á HM.

„Svona í allri hreinskilni er ég aðeins að hugsa um HM. Þetta er fyrsta stórmótið mitt með landsliðinu og mót sem mig hefur dreymt um að spila á. Ég vil setja alla einbeitingu í það.“

„Við munum tala um framtíðina eftir HM og sjá hvað gerist,“ sagði Koné.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.