Heimild: Sun
Manchester United hefur náð samkomulagi við Leicester um kaup á Harry Maguire fyrir 80 milljónir punda.
The Sun greinir frá þessu og að Maguire mun ferðast til Manchester á morgun til að fara í læknisskoðun.
Ef þetta reynist rétt þá verður Harry Maguire dýrasti varnarmaður í sögunni og toppar þá kaupin á Virgil van Djik sem kom til Liverpool á 75 milljónir punda árið 2018.
Bæði Manchester United og Manchester City hafa verið orðuð við Harry Maguire og hafa bæði lið boðið 70 milljónir punda en Leicester hafnað þeim boðum.
Harry Maguire hefur verið lykilmaður í liði Leicester ásamt því að vera byrjunarliðsmaður í enska landsliðinu.
Athugasemdir