Ástralski markvörðurinn Matthew Ryan er á leið til ítalska félagsins Roma en þetta segir Gianluca Di Marzio í dag.
Ryan er 32 ára gamall með þokkalega ferilskrá en hann hefur verið á mála hjá Brighton, Arsenal, Valencia, FCK og nú síðast AZ Alkmaar.
Markvörðurinn eyddi síðustu leiktíð hjá Alkmaar en samningur hans rann út eftir tímabilið.
Di Marzio segir hann nú á leið til Roma á Ítalíu en hann verður varamarkvörður fyrir Mile Svilar.
Ryan er aðalmarkvörður ástralska landsliðsins þar sem hann hefur spilað 93 leiki.
Athugasemdir