Besta deild kvenna: Fram klifrar úr botnsætinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur R. 0 - 1 Fram
0-1 Taylor Marie Hamlett ('48)
0-1 Taylor Marie Hamlett ('48)
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 1 Fram
Þróttur R. tók á móti Fram í seinni leik kvöldsins í Bestu deild kvenna og voru heimakonur talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.
Þeim tókst þó ekki að setja boltann framhjá Ashley Orkus sem átti góðan leik á milli stanga Fram.
Staðan var markalaus í hálfleik og náðu gestirnir forystunni í upphafi síðari hálfleiks, þvert gegn gangi leiksins. Taylor Marie Hamlett gerði vel að snúa á varnarmann og klára með marki eftir sendingu frá Brookelynn Entz.
Það ríkti nokkuð jafnræði með liðunum og var afar lítið af færum allt þar til á lokamínútunum, þegar heimakonur gerðu sig líklegar til að jafna en nýttu ekki tækifærin sín. Lokatölur urðu því 0-1 fyrir Fram.
Þetta er annar sigur Fram í röð og klifrar liðið úr botnsæti Bestu deildarinnar. Fram er núna með 10 stig eftir 11 umferðir, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.
Þessi úrslit eru aftur á móti mikil vonbrigði fyrir Þrótt, sem er með 13 stig.