Fotbolti.net
14.07.26 - 19:54
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Stjarnan hafði betur í fimm marka leik

Besta deild kvenna: Stjarnan hafði betur í fimm marka leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Stjarnan 3 - 2 Þór/KA
1-0 Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('6 )
1-1 Bríet Jóhannsdóttir ('36 )
2-1 Snædís María Jörundsdóttir ('57 )
3-1 Hulda Hrund Arnarsdóttir ('65 )
3-2 Erin Flurey ('91, víti)
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 2 Þór/KA
Stjarnan og Þór/KA áttust við í Bestu deild kvenna í dag og náðu heimakonur forystunni snemma leiks þegar Fanney Lísa Jóhannesdóttir skoraði eftir góða pressu.

Garðbæingar fengu færi til að bæta mörkum við leikinn sem fóru forgörðum en bökkuðu í kjölfarið sífellt aftar á völlinn og tóku Akureyringar stjórn á leiknum. Það leiddi til jöfnunarmarks frá Bríeti Jóhannsdóttur á 36. mínútu, svo staðan var jöfn í leikhlé.

Síðari hálfleikurinn fór skemmtilega af stað, Þór/KA fékk færi áður en Snædís María Jörundsdóttir endurheimti forystu heimakvenna með skalla eftir fyrirgjöf. Skömmu síðar tvöfaldaði Hulda Hrund Arnarsdóttir forystuna eftir gullfallega stoðsendingu Telmu Steindórsdóttur.

Akureyringar sóttu stíft á lokakaflanum og minnkuðu muninn með marki úr vítaspyrnu snemma í uppbótartímanum. ....

Stjarnan jafnar Breiðablik á stigum í öðru sæti Bestu deildarinnar með þessum sigri, með 21 stig eftir 11 umferðir. Blikar eiga þó leik til góða.

Þór/KA er áfram í fallsæti, með 9 stig.
Besta deild kvenna: Stjarnan hafði betur í fimm marka leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Stjarnan hafði betur í fimm marka leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.