Fotbolti.net
14.07.26 - 19:07
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeildin: HK rúllaði yfir ÍR

Lengjudeildin: HK rúllaði yfir ÍR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
HK 5 - 1 ÍR
1-0 Karl Ágúst Karlsson ('20 )
2-0 Atli Hrafn Andrason ('24 )
3-0 Dominik Radic ('26 )
4-0 Þorsteinn Aron Antonsson ('38 )
5-0 Tumi Þorvarsson ('60 )
5-1 Stefán Þór Pálsson ('84 )
Lestu um leikinn: HK 5 - 1 ÍR
HK tók á móti ÍR í Lengjudeild karla og gjörsamlega rúllaði yfir Breiðhyltinga með fjórum mörkum á átján mínútna kafla í fyrri hálfleik.

Karl Ágúst Karlsson, Atli Hrafn Andrason, Dominik Radic og Þorsteinn Aron Antonsson skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín í Kópavogi svo staðan var 4-0 í leikhlé.

Tumi Þorvarsson setti fimmta markið í síðari hálfleik áður en Stefán Þór Pálsson gerði fánamark ÍR-inga, svo lokatölur urðu 5-1.

HK fer upp í þriðja sæti með þessum sigri, þar sem liðið situr með 25 stig eftir 14 umferðir - þremur stigum á eftir toppliði Aftureldingar sem á leik til góða.

ÍR er með 12 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið. Jóhann Guðmundsson. þjálfari ÍR, tók út leikbann í leiknum.
Lengjudeildin: HK rúllaði yfir ÍR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.