Fotbolti.net
14.07.26 - 20:40
Sverrir Örn Einarsson

Niko um ljónið: Tók þrjá daga

Auglýsing
Niko Hansen

Niko Hansen

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Nikolaj Hansen stóð einu sinni sem oftar í ströngu í framlínu Víkings þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Györ ytra fyrr í kvöld og tryggði sig þar með áfram í næstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar með 3-2 sigri samanlagt. Fótbolti.net spjallaði við Niko í Györ og sagði hann um leikinn.
Lestu um leikinn: ETO Györ 2 - 2 Víkingur R.
„Þetta var ótrúlega erfitt, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem við vorum í 40 mínútur í lágblokk, þeir með boltann og við bara að hlaupa og ná ekkert að halda í boltann. Í seinni hálfleik komum við svo mjög vel út, héldum aðeins í boltann og skoruðum mjög gott mark og héldum svo bara út.“

Fátt vakti meiri athygli úr herbúðum Víkings fyrir leikinn en mynd af flennistóru húðflúri Niko sem skartar stórri mynd af ljóni á bakinu. Margir vildu vita meira og þá hver sagan á bak við flúrið er.

„Það er svo sem engin saga mér finnst bara flott að vera með flúr. En þetta er á covid tímanum þá fer ég út og tek þrjá daga, föstudag laugardag og sunnudag í þetta og flýg svo heim. Sunnudagurinn var erfiður og það var ekkert gaman en mér finnst þetta flott og ég fæ mér meira einhvern tímann.“

Heitt var í Györ í dag og hiti um 30 gráður. Hvernig er fyrir Niko sem verið hefur á Íslandi í 10 ár að spila í þessu veðurfari? Stemming?

„Jú bara stemming og á sama tíma að koma hingað og slá út Ungversku meistaranna. Þetta er ekkert grín en við sýndum að við erum í góðu formi, hlupum í 95 mínútur og það er geðveikt að fara áfram.“

Sagði Niko en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Ljónið er rosalegt

Ljónið er rosalegt

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.