Fotbolti.net
14.07.26 - 20:20
Sverrir Örn Einarsson

Ögmundur: Fyrir nokkrum vikum var ég hættur i fótbolta

Auglýsing
Ögmundur Kristinsson

Ögmundur Kristinsson

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Ögmundur Kristinsson stóð í marki Víkinga í kvöld sem með 2-2 jafntefli gegn Györ í Ungverjalandi tryggði sig áfram í næstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu þetta árið. Ögmundur var til viðtals við Fótbolta.net í Györ og svaraði um tilfinningar sínar eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ETO Györ 2 - 2 Víkingur R.
„Ég er bara fyrst og fremst glaður. Þetta var alvöru frammistaða hjá liðinu sem lagði líf og sál í þetta. Þá koma svona úrslit og við áttum bara skilið að fara áfram úr þessu einvígi.“

Margir Víkingar tóku andköf í síðari hálfleik þegar Ögmundur lagðist niður eftir samstuð við framherja heimamanna og kenndi sér meins. Fréttaritari Fótbolta.net taldi til að mynda afar ólíklegt að hann myndi klára leikinn. En hvað með Ögmund á því augnabliki? Hélt að hann að þetta væri slæmt?

„Ég hélt það fyrst en Rúnar sjúkraþjálfari kom inná og sagði mér að hann hefði líklega farið í taug undir leggnum á mér og þess vegna dofnaði öll löppin. En þetta er að koma til baka svo vonandi bara eitthvað högg.“

Thibaut Courtois markvörður Belga yfirgaf völlinn í leik Belgíu og Spánar á dögunum vegna meiðsla. Varð Ögmundi hugsað til hans?

„Nei reyndar ekki, ég hugsaði bara strax að ég væri ekki að fara út af.“

Bjóst Ögmundur sem nýlega gekk til liðs við Víkinga á undanþágu við því fyrr í sumar að hann væri að fara að spila mikilvægan Evrópuleik svo snemma fyrir félagið?

„Nei alls ekki, fyrir nokkrum vikum var ég hættur í fótbolta. Ég þakka bara Víkingum traustið sem þeir setja á mig og vonandi get ég borgað þeim það til baka.“

Allt viðtalið þar sem farið er um víðan völl má sjá hér að ofan.
Ögmundur: Fyrir nokkrum vikum var ég hættur i fótbolta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.